SCUMPAINTER
HæKristinn Gauti Einarsson
Það var að birtast ný mynd sem kannski spannar ekki endilega sögu síns samtíma en samt er hún frekar kostuleg fyrir það samfélag sem við búum í. Ég vil lifa hreinu lífi og þetta er túlkun mín á því. Einkaeignir og hampiðja dregur úr mér alla lífslöngun og því verður ekki breytt sama hvað.
Paintworker
Ný myndKristinn Gauti Einarsson
Já hæhó það er komin inn glæný mynd núna klukkan 16:32. Þessi mynd markar svolítil tímamót í mínum ferli þar sem ég er hættur í súrrealískum mósaíkstíl og færi mig aðeins framar í sögunni. Það er nýrómantík og föðurlandslof sem einkennir mynd mína og þið munið fá að sjá fleiri svoleiðis myndir á næstunni.
Paintið á fullri ferðKristinn Gauti Einarsson
Nýar myndir eru komnar inní haustmyndaalbúmið. Ég teiknaði þær bara alltíeinu. Var ekkert búinn að plana neitt, sem er soldið skrítið. Ég bara settist niður og þær hrönnuðust af fingrum mínum og festust á blaði eins og þær líta út! Hafiði einhverntíman lent í þessu? endilega svariði í commentum!Kristworker
Nýtt í PaintsafniðKristinn Gauti Einarsson
Nú er ég búinn að gera tvær nýar myndir sem eru ennþá ferskar og ekki neitt moderniskar. Ég vil ekki vera þessi gaur sem kemur með súrrealisma eða rómantík því að það er ekkert líf í hugtökum. Én hver veit nema að nýtt hugtak verði markað með mínum myndum? En allavegana, skoðiði nýu myndirnar í MYNDIR.Kristworker
MyndirKristinn Gauti Einarsson
hæhæ. Ég ætlaði bara að láta ykkur vita af því að það eru komin tvö paintworks inní myndir. Veriði ekki of fljót á ykkur látið ofsan ekki drífa ykkur áfram í ofurfasi því fas gerir enga flýti. En ég verð bara að hætta núna ég er búinn að skrifa alltof mikið. Það eina sem ég ætlaði að skrifa í þessari færslu var að það séu komnar inn myndir. En ég gleymdi mér algjörlega í að skrifa og fór að skrifa alltof mikið. Það er nefninlega svo nauðsynlegt á svona bloggsíðum að hafa bloggin mjög short og neaty eða stutt og hnitmiðuð. Nema náttúrulega ef maður vill segja sögu eða gera stutta sögu langa. En ég veit of course ekki um neinn sem vill gera stutta sögu langa því að mínir vinir eru algjörlega hreinræktaðir Neatartist og láta ekki fella sig á svoleiðis yfirdrifni vitleysu. En já ég er búinn að skrifa alltof mikið. Er búinn að ætla að hætta tvisvar en held svo bara alltaf áfram án þess að ég viti af því! Það er eins og það sé einhver inní mér sem stjórni því sem ég geri. En það væi nú algjör vitleysa og það getur aldrei gerst svo að þetta er eftir allt bara ég sjálfur. Stop!Kristworker
HæhóKristinn Gauti Einarsson
Ég er áhugapainter og hef áhuga á að sýna myndirnar mínar hérna á veraldarvefnum. Ég segi alltaf : Paint the world! og ég ætla mér bara að halda því. BæbæHey já. ég vona að þið fílið paintworkin mín. Bæbæ